Skip to product information
Mél - Teitur

Mél - Teitur

14.990 kr
Taxes included.

TEITUR eru tvíbrotin mél með koparmunnstykki (allir hlutar) og býsna stórum hringjum sem veita stöðugleika og dreifa álagspunktum á munnvikum hestsins.

Meira um koparmélin:

Gott samband gegnum beislið, og gott taumsamband er eitthvað sem allir knapar leita að.

 Stöðugt, rólegt og mjúkt fljótandi samband við munn hestsins gefur knapanum réttar forsendur við þjálfun hans og einungis þannig færast réttar upplýsingar á milli hests og knapa. 

 Til þess að ná góðu taumsambandi þarf knapi að vera vandlátur við val á beisli fyrir hestinn sinn, og velja mél sem henta hestinum, mél sem passa, eru létt að bera og henta verkefninu.

 Koparmélin frá DK, Teitur, Smári og Skvísa eru vönduð framleiðsla og um leið frábær valkostur þegar nota á mél sem hvetja til munnvatnsframleiðslu og veita um leið ró og mýkt í taumsambandi.

 

Kopar
Stærð

Annað áhugavert